Hvað mínir viðskiptavinir Segja

Hver umsögn endurspeglar raunverulegt samstarf.

Árið 2024 tók ég við rekstri á fyrirtæki sem ég hafði starfað hjá um nokkurn tíma. Þegar ég tók við var ég með hugmyndir um hvað það var sem ég vildi bæta í rekstrinum. Það getur verið flókið að koma á breytingum og það tekið langan tíma.

Ég fékk Aníku í lið með mér í upphafi árs 2025 og aðstoðaði hún mig með að móta og ramma inn reksturinn og þær breytingar sem ég hafði hugsað mér auk þess sem hún kom með mikið af ráðleggingum og lausnum sem hafa nýst mér mjög vel og gert starf mitt bæði viðráðanlegra en einnig mun skemmtilegra. Af þeirri þjónustu sem ég keypti í mótun fyrirtækisins hefur sú þjónustan sem Aníka veitir nýst lang best og skilað þeim árangri sem ég sá fyrir. Ég mæli eindregið með ráðgjöf frá Aníku, hvort sem þú ert að hefja rekstur eða vilt aðstoð við að koma á stórum sem litlum breytingum.

Guðmunda

Gimli Fasteignasala

Ég er mjög ánægð með að hafa tekið tiboðinu hennar Aníku Rós um aðstoð við að skoða fyrirtækjareksturinn hjá mér. Þó að maður viti innst inni hvað þarf að gera hverju þarf að breyta er mjög gagnlegt að fá einvern til að spjalla við um hlutina. Samtalið okkar Aníku varð til þess að ég dreif mig í að gera hluti sem ég var bara búin að vera að hugsa um að gera í langan tíma. Ég mæli eindregið með því að fá ráðgjöf hjá Aníku Rós ef þú ert svolítið strand í rekstrinum þínum, hún kemur kemur þér á rétta braut á ný.

Hanna

Mýranaut ehf

Takk kærlega fyrir þennan fyrsta vinnukafla saman. Mig langaði að segja þér hversu mikið ég kunni að meta vinalega nálgun þína, sem lét mig finna að ég væri skilin og studd allan tímann. Þú gafst mér mikið af innsýn og hugmyndum, en með skýrum og auðveldum skrefum sem var einfalt að fylgja. Ég fann virkilega fyrir merkingunni í „Girlfriends in business“ sem þú vilt miðla — leið til að skapa rými til að vaxa með hjálp hver annarrar, deila auðlindum og fagna sigrum saman. Ég hef nú fleiri úrræði og verkfæri til að reka litla fyrirtækið mitt með meiri fókus og meiri léttleika.

Luana Adriani
Loopyful Design

Aníka er mjög fagleg og vinnur sína vinnu mjög vel og skilar flottu og faglegu verki. Aníka tók á heimsíðu Hirzlunnar gaf okkur mjög ýtarlega skýrslu sem hjálpar okkur mikið við að gera viðmót síðunnar betra og gera sýnileika Hirzlunnar á leitarvélum enn betri.

Marta Sigurjónsdóttir
Hirzlan

Við hjá Afltak erum mjög ánægð með úttektina á heimasíðunni hjá Aníku Rós. Mjög góðar ábendingar sem við ætlum að nýta okkur til að bæta gæðin og útfærsu á heimasíðunni okkar.

Kristín Ýr Pálmarsdóttir
Afltak

Ég gef Aníku Rós mín hæðstu og bestu meðmæli. Vinnutíminn minn getur verið mjög ólíkur svo Aníka Rós skipulagði okkar tíma sem hentuðu minni vinnuáætlun, ekki hennar endilega. Fyrir það er ég þakklát. Öll ráðin sem ég hef fengið hafa verð mjög gagnleg, sum ráðin hafði ég aldrei hugleitt eða dottið í hug áður. Sum hver mjög einföld en á sama tíma mjög dýrmæt. Verkefnin sem ég fékk þurfti ég ekki að búa til excel skjal sjálf, heldur voru þau send til mín í tölvupósti með einfaldri uppsetningu og mjög einföld og auðvelt að fylla út. Og það sem ég met mjög er að það var alltaf hægt að hafa samband við Aníku Rós jafnvel eftir vinnutíma. Þjónusta 100%

Sólveig Jan
Höfðabón þjónusta

Í ár tók ég of mikið að mér. Milli þess að stjórna Gracelandic, kafa í ný verkefni, stunda meistaranám og vera mamma, náði ég þröskuldinum mínum. Ég var að brenna út. Á þessari erfiðu stundu leitaði ég til vinkonu minnar Aníku Rós og hennar ráðgjafarþekkingar og fékk aðstoð. Hún sá mig á mínum versta stað og gaf mér ekki bara ráð, heldur líflínu. Hún kenndi mér hvernig á að skipta hlutverkum mínum upp í hólf, nálgast verkefnin mín af einbeitingu og - síðast en ekki síst - ég komst að þeirri auðmjúku niðurstöðu að það væri í lagi að viðurkenna að ég gæti ekki allt.


Viska hennar hjálpaði mér að losa mig við þrýstinginn um að þörfina að gera allt í einu og í staðinn að forgangsraða því sem raunverulega skiptir máli. Þökk sé Aníku og ígrunduðu leiðsögn hennar hef ég fundið jafnvægi, skilvirkni og friðsæld sem hefur hjálpað mér að einbeita mér að því mikilvæga í lífinu sem ég mun taka með mér á næsta ári og lengra. Aníka, ég er ævinlega þakklát fyrir stuðninginn og skýrleikann sem þú hefur gefið mér. Þakka þér fyrir að hjálpa mér að finna sjálfan mig aftur. ❤️😊💫


Þakklát fyrir árið 2024! Stærsti lærdómurinn minn hingað til ❤️

Grace Achieng
Gracelandic

Aníka Rós gaf okkur virkilega góða hugleiðingu um hvað við getum bætt í starfi okkar. Hún er hvetjandi, jákvæð og frábær í því sem hún gerir. Verkefnin sem hún úthlutaði okkur voru mjög gagnleg og komu að góðum notum. Á stuttum tíma ráðgjafar hennar tókst okkur að breyta vinnuflæði okkar og tímastjórnun sem jók samstundis framleiðni innan teymisins.

Elín, Auður og Inga
Birta Media

Ég fékk viðskiptaráðgjöf hjá Aníku Rós í 6 vikur og var það mjög gagnlegt. Hún kom mér vel af stað og gaf mér góð ráð, ýtti mér út fyrir þægindarammann og gaf mér verkefni fyrir hvern tíma. Ég mæli með því við alla þá sem eru að stofna fyrirtæki eða eru í viðskiptum að fá ráðleggingar hjá Aníku Rós.

Gauja
calma.is og memoiceland.is